Bókaranám fyrir lengra komna er hagnýtt framhaldsnámskeið í bókhaldi. Námskeiðið hentar þeim sem hafa einhverja bókhaldsreynslu eða hafa lokið tölvu-, skrifstofu- og bókhaldsnámi og vilja ná dýpri þekkingu og færni í bókhaldi. Þetta námskeið er einnig hugsað sem aðfararnám fyrir þá sem stefna á námið Viðurkenndur bókari.
Markmið
Að loknu námskeiði getur þátttakandi með/án hjálpargagna:
- Fært fjárhagsbókhald.
- Gert vsk uppgjör, stemmt af og gert leiðréttingarskýrslur.
- Reiknað út laun og launatengd gjöld.
- Gert grein fyrir hvað telst til launahlunninda og hvað ekki.
- Fært launabókhald, gert launamiða, launaframtal og skil til skatts (Laun eru færð í DK).
- Fært leiðréttingarfærslur.
- Notað þá leikni sem hann hefur öðlast á námskeiðinu til að stemma af:
- bankareikninga og kreditkort
- stöðu lána og skuldabréfa
- viðskiptamenn og lánadrottna
- laun og launatengd gjöld
- ógr. laun og launatengd gjöld
- aðkeypta þjónustu og verktakagreiðslur
- stöðu opinberra gjalda og greiðslufrests aðflutningsgjalda
- ógr. reikninga, fyrirframgr. reikninga og tekna
- Notað þá leikni sem hann hefur öðlast á námskeiðinu til að gera að gera uppgjörs- og lokafærslur vegna:
- ógr. gjalda, fyrirframgr. reikninga og tekna
- óseldra vara (birgða)
- fyrninga eigna og krafna
- vegna leiðréttinga
- uppfærslu lána
- færslu niðurstöðu reikninga á efnahags- og rekstrarreikning
- Gert skil á bókhaldi til endurskoðenda ásamt þeim gögnum sem þurfa að fylgja.
- Sett upp rekstrar - og efnahagsreikninga.
- Skilgreint hvað sjóðstreymi er og hver sé tilgangur þess.
- Reiknað helstu kennitölur.
- Lesið ársreikninga.
Námskeiðsröð:
- Excel framhald
- Launaútreikningur
- Dk framhald og lokafærslur
- Inngangur að Reikningsskilum
Check your inbox to confirm your subscription